gototopgototop

Skype - hafðu samband núna...

Wiki-orð vikunnar..

Innskráning



Hraðlestrarskólinn ábyrgist árangur og ánægju - alla ævi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hraðlestrarskólinn ábyrgist árangur og ánægju - alla ævi

abyrgd_aevi_100_200x200Æviábyrgð

Þegar þú greiðir fyrir hraðlestrarnámskeið hjá Hraðlestrarskólanum öðlast þú ÆVIÁBYRGÐ inn á námskeiðið til frambúðar.  Við leggjum allt okkar í að þér gangi vel - ekki bara í dag - ekki bara á morgun - ekki bara á meðan að á námskeiði stendur - heldur alla ævi.  Þú átt að geta bætt kunnáttu og skerpt á færni þinni eins oft og þú telur þörf á yfir ævina.  Við höfum engan áhuga á að selja þér sama námskeiðið aftur þó þú hafir ekki náð að festa allt efnið í sessi þegar þú situr námskeiðið í fyrsta sinn.  Hraðlestrarskólinn kallar æviábyrgðina hjá sér "virka símenntun" - og þú átt hana skilið.

Innifalið í æviábyrgð er aðgangur að kennara í gegnum tölvupóst og síma ef þú ert að taka upp æfingar heima við á eigin spýtur og nýtir kennslugögn af námskeiði en hefur gleymt einhverju og þarft á hjálp okkar að halda.  Engu skiptir hvort þú þarft hjálp okkar að halda eftir 2 mánuði eða 2 ár.  Þú hefur einnig ævilangan aðgang að nemendavef Hraðlestrarskólans og þeim æfingum sem þú þarft að nota til að halda hraðlestrarkunnáttu þinni við til frambúðar.

abyrgd_arangur_200x200

Árangursábyrgð

Okkur finnst þó ekki nóg að þú hafir æviábyrgð - því hvað hefur þú svo sem við æviábyrgð að gera ef þú nærð ekki árangri á námskeiðinu?  Ég þekki árangurinn af eigin raun - því ég hef setið námskeiðið.  Ég hef kennt þúsundum Íslendinga að margfalda lestrarhraðann og veit því að þetta ber árangur.  Þeir nemendur sem hafa setið námskeiðið - þekkja árangurinn.  Ef þú hefur ekki setið námskeiðið - þá þekkir þú það ekki.  Ekkert vandamál.  Því bjóðum við upp á ÁRANGURSÁBYRGÐ - og gildir hún einfaldlega þannig að ef þú nærð ekki að tvöfalda lestrarhraða þinn á námskeiðinu - þá færðu einfaldlega endurgreitt.  Þurfum ekki að flækja málið að óþörfu - og því gildir árangursábyrgðin núna af öllum námskeiðum Hraðlestrarskólans.  Ef þú sinnir námskeiðinu, mætir í tímana, vinnur heimavinnuna og skilar árangri til kennara vikulega en nærð ekki að tvöfalda lestrarhraða þinn - þá færðu námskeiðagjaldið að fullu endurgreitt.

abyrgd_anaegju_200x200Ánægjuábyrgð

Frá og með ágúst 2010 bætum við svo um betur og bjóðum upp á 36 mánaða ÁNÆGJUÁBYRGÐ.  Við leggjum það mikinn metnað í námskeiðið okkar að við erum ekki sátt ef þú nærð bara að auka lestrarhraðann í einhverjar vikur eftir námskeiðið.  Þú átt að finna fyrir viðvarandi árangri til frambúðar - þannig byggjum við upp námskeiðið - og þannig virkar hraðlestrartæknin.  Þegar þú sækir námskeiðið okkar viljum við að þú náir að halda nýjum auknum lestrarhraða til frambúðar, nýtir aðhaldsferli okkar síðan til að festa þennan hraða í sessi og auka hann enn frekar í framtíðinni.  Ef þú ert aftur á móti ekki ánægður eða ánægð með árangur þinn eftir 36 mánuði - þú sinntir námskeiðinu, þú mættir í tímana, þú vannst heimavinnuna, þú skilaðir árangrinum til kennara vikulega og þú hefur setið að lágmarki 2 upprifjunarnámskeið - en nærð samt ekki þeim  árangri sem þú varst að leita eftir - þá virkar ánægjuábyrgðin einfaldlega þannig að þú færð námskeiðið endurgreitt. Punktur.

abyrgd_krakka_200x200Krakkaábyrgð

Frá og með september 2010 hefjum við námskeið fyrir aldurshópinn 9-12 ára - Hraðlestrarkrakkar - og auðvitað gildir KRAKKAÁBYRGÐ á því námskeiði.  Krakkaábyrgðin gildir einfaldlega þannig að þátttakendur á námskeiðinu  - Hraðlestrarkrakkar  - geta tekið námskeiðið eins oft og þau vilja eða telja þörf á fram til 13 ára aldurs.

Ekki hika við að hafa samband við mig ef þú hefur einhverjar spurningar um ábyrgðina okkar - skjóttu þeim til mín í tölvupósti - á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringdu í 773-0100

 

Við ábyrgjumst árangur þinn

Kynning á námskeiði

Hverjir eru inni?

Það eru 4 gestir og er 1 meðlimur á síðunni núna

Skráðu þig á biðlistann okkar

..vertu í forgangi

Skráðu þig á biðlista og þá færðu fréttir af nýjum námskeiðum beint í pósthólfið þitt og ert í forgangi á ný námskeið.

Fornafn (*)

Invalid Input
Eftirnafn

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



Skrá mig fyrir fréttabréfinu..

..með á nótunum?

Viltu fá gullmola um hraðlestur, námstækni og annað er tengist lestri. Vertu þá áskrifandi að fréttabréfinu okkar - Hraðlestrarlykillinn.

Fornafn (*)

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



SkráningUmsagnirHraðlesturNámskeiðinFramhaldsnámskeiðNæstu námskeið
JoomlaWatch Stats 1.2.9 by Matej Koval