~ Hraðlestrarkrakkar - hraðlestur fyrir 10-12 ára hefst með nýju sniði á veglegan hátt í júní 2012 - biðlistaskráning er hafin ~
Í ágúst er væntanleg á markað bókin Hraðlestur fyrir 10-12 ára - sjá www.Hraðlestur.is - og verður hún grundvöllur nýrra hraðlestrarnámskeiða - Hraðlestrarkrakkar - hraðlestur fyrir 10-12 ára - hjá okkur. Bókinni ætlað það hlutverk að gera lestur að skemmtilegri og spennandi venju í lífi krakkanna.
Í júní ætlum við að fara af stað með námskeiðið og prufukeyra lokaútgáfu af æfingum og fá þátttakendur veglegan afslátt inn á námskeið og fá í kaupbæti góðar gjafir.
Umsagnir af almennu hraðlestrarnámskeiði:
“Mér fannst námskeiðið skemmtilegt og það hjálpaði mér mjög mikið.” - Orri Hjörvarsson, 12 ára nemi.
“Sonur minn 12 ára tók ótrúlegum framförum í lestrarhraða á síðustu 6 vikum. Hann fann mikla hvatningu í stöðugri endurgjöf og fannst námskeiðið skemmtilegt.” - Sigríður Valdimarsdóttir, 41 ára kennari.
"LOKSINS" segja sum ykkar - allavega velflest ykkar sem hafið setið námskeiðið og eigið börn eða systkini á þessum aldri enda hef ég í fjölmörg ár þurft að segja NEI við ykkur. Lágmarksaldur hjá okkur hefur verið 13 ár - og þá yfirleitt horft til fermingaraldurs - en málið var aldrei það að hraðlestrartæknin sjálf væri svo flókin - hún er það ekki. Vandamálið var alltaf að þær æfingar sem ég renni með nemendum í gegnum voru oft erfiðar og flóknar - þegar heim var komið – og nemendur einir að vinna sína vinnu. Eldri einstaklingar eru duglegri að sækja hjálp - krakkarnir eru feimnari við það. Þannig urðu Hraðlestrarkrakkar til - hér komum við grunnatriðum hraðlestrartækninnar til skila - skerum burt glósutækni og námstækni - enda meira atriði að bæta lestrarhæfni og ýta undir lestraránægju. Krakkarnir njóta tímans miklu betur - og æfingar mjög auðveldar (nota sínar eigin bækur).
“Mér fannst kennarinn góður og ég náði að bæta mig. Þetta var mjög gaman.” - Valur, 12 ára nemi.
“Þetta var mjög skemmtilegt og fræðandi námskeið og lærði mikið af því. Takk fyrir mig.” - Rakel Jóhanna Ragnarsdóttir, 12 ára grunnskólanemi.
- Velflestir nemendur okkar nefna að þeir hefðu viljað kynnast þessari aðferð miklu fyrr og hér er tækifæri fyrir þig að auðvelda barninu þínu að festa þetta í sessi snemma.
- Þau fá strax 100% krakkaábyrgð og tryggir þeim þannig tök á að sækja námskeiðið eins oft og þau vilja - án þess að greiða aukalega fyrir það.
- ...og síðast en ekki síst þá gildir námskeiðagjaldið sem afsláttur inn í almennt hraðlestrarnámskeið - þegar þau verða 13 ára - og geta þannig bætt enn frekar við lestrarhraðann en þá bætist glósutæknin og námstæknin við enda námskröfur barna jafnan orðinn mun meiri.
“Það var bæði gaman og lærdómsríkt að fara á þetta námskeið og ég jók lestrarhraðann talsvert mikið og nú kann ég fleiri aðferðir til að lesa og ég mæli með þessu :-)” - Elísa Elíasdóttir, 12 ára.
“Fyrst var ég ekkert spenntur en nú er ég ánægður að hafa farið á það.” - Adam Freysson, 13 ára nemi.
...NÆSTU NÁMSKEIÐ...
Reykjavík - 3 vikna námskeið - hefst í júní
Kennsludagar: Rétt fyrir 15. júní - Dagsetning er væntanleg - biðlistaskráning er hafin
Staðsetning: Reykjavík - Grand Hótel við Sigtún.
Tímasetning: Ekki komin á hreint - ábendingar um tíma fyrir krakkana vel þegin.
Fyrirkomulag: Hópurinn hittist þrisvar á námskeiði, einu sinni í viku. Farið er í ýmsar tækniæfingar sem ætlað er að þjálfa hraðlestrartæknina og kennari fer síðan í gegnum efni er tengist hraðlestri og annað efni sem tengist lestri almennt.
Verð
Almennt verð er 17.500 kr. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.
TILBOÐ í Júní: 50% afsláttur af námskeiði og bókargjöf ásamt góðri aukagjöf.

Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur að gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og Krakkaábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir og hann telur þörf á fram að 13 ára aldri, námskeiði fylgir 17.500 kr afsláttur inn á Hraðlestrarnámskeið sem nemandi getur nýtt sér eftir 13 ára aldur.
Væntanlegt í verslanir í ágúst 2012

Hraðlestur fyrir 10-12 ára
- og nú skulum við lesa enn meira.
7 einfaldar æfingar til að gera lestur að skemmtilegri venju í þínu lífi.
Mikilvægi lestrarfærni í öllu formi er okkur öllum nauðsyn í nútímasamfélagi, en góð lestrarfærni næst eingöngu með því að lesa – og lesa mikið. Lestur bókar þarf að vera eitthvað sem okkur þykir skemmtilegt að gera – annars reynum við að forðast það að lesa bækur. Þessari bók er ætlað að fá 10-12 ára börn til að lesa meira, hafa gaman af því að byggja upp orðaforða, bæta lestrarfærni og efla kunnáttu í eigin tungumáli.
Í þessari bók munt þú kynnast því hvernig:
- Þú getur gert lesturinn að skemmtilegri venju
- Þú bætir lestrarhraða þinn á nokkrum vikum
- Þú hefur meira gaman af bókum þegar þú lest hratt
- Þú eykur almenna lestrareinbeitingu í öllum lestri
- Þú byggir upp orðaforða og af hverju það er mikilvægt
- Þú tekur á gömlum lestrarvenjum sem halda aftur af þér
- Þú notar 7 einfaldar æfingar til að þjálfa markvisst lestrarfærnina
- Þú getur haldið áfram að bæta hraða og skilning þinn enn frekar
Þú getur auðveldlega þjálfað lestrarfærnina þína. Eftir hverju ertu að bíða?
Njóttu þess að hafa gaman af bókum!
|